Ekki vera of viss

Það er ekki sjálfgefið að Samfylkingin hafi traust þjóðarinnar til að leiða nýja stjórn,með VG og varin af framsókn,alls ekki.

Ef mótmælin eiga að hafa tilætluð áhrif þarf stjórnin að segja af sér og utanþings stjórn með sérfræðingum sem lausir eru við vibbann að stjórna þar til kosið verður ,því annars er ver farið en heima setið. 

Hugleiðum það við skulum ekki kalla yfir okkur vanhæfa vinstri stjórn í stað vanhæfrar hægri stjórnar


mbl.is Samþykktu ályktun um stjórnarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Aðgerðir "innrásarvíkinganna" í Þjóðleikhúskjallarann í kvöld styðja ágætlega við þessa skoðun þína. Þeir tilkynntu, að minnsta kosti, í umboði Vinstri grænna og ef til vill fleira fólks, að kratarnir væru allir reknir. Eins og þú segir þá er álitamál hvor kosturinn er betri, vanhæf ríkisstjórn eða óhæf ríkisstjórn!

Flosi Kristjánsson, 21.1.2009 kl. 22:42

2 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Já Flosi

Ef einhver er vanhæfur á annað borð,sem er,þá er það allur Þingheimur hvers flokkur það er og að halda því fram að VG sé stikkfrí er bara firr,firra og sögufölsun.

Nei alla út því ef við viljum Nýtt Ísland þá er það nú eða aldrei

Gunnar Þór Ólafsson, 21.1.2009 kl. 22:55

3 Smámynd: Kjartan Heiðberg

Vissulega þarf að boða til kosninga sem allra fyrst og mynda nýja risisstjórn upp úr þeim.  En áður en af því verður, þarf að taka rækilega til í núverandi flokkum og stofna til NÝRRA flokka og samtaka ábyrgra manna.  Í dag á Samfylkingin ekkert erindi í ríkisstjórn.  Undir stjórn ISG er flokkurinn eins og skopmynd af Sjálfstæðisflokknum, eins og hann var undir stjórn DO.  Sterkur formaður, kraftlaus varaformaður og skoðanalausir viðhlæjendur á þingi og í ráðherrastólum.

Nei, það þarf að taka til í Samfylkingunni til að hún sé nothæf í fríkisstjórn.  Í komandi kosningum ætla ég að kjósa þann flokk, sem stillir upp ómenguðu fólki, fólki sem segir mér sannleikann eins og það sér hann hverju sinni.  Engar frekari blekkingar, takk.

Kjartan Heiðberg, 21.1.2009 kl. 22:59

4 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Ég er að reyna að segja þetta

Gunnar Þór Ólafsson, 21.1.2009 kl. 23:05

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála þessu Gunnar.  Á morgun verður blaðamannafundur þar sem þetta verður kynnt.

Sigrún Jónsdóttir, 21.1.2009 kl. 23:25

6 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Er það NPN og fleiri. hvenær á morgun

Gunnar Þór Ólafsson, 21.1.2009 kl. 23:29

7 Smámynd: Kjartan Heiðberg

Þetta er mikið fagnaðar efni, sem Sigrún boðar.  Og gott er að vita að NPN skuli vera með því pælingar hans hljóma einkar vel.

Kjartan Heiðberg, 21.1.2009 kl. 23:35

8 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

hver eða hvað er NPN

Jón Rúnar Ipsen, 22.1.2009 kl. 06:38

9 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Svo innilega sammála..ég er ekki búin að mótmæla úr mér lifrum og lungum bara til að fá smá hrókeringar..ég vil nýtt blóð, nýja hugmyndafræði, ný gildi og nýtt Ísland. Burt með allt þetta flokkspólitíska spillingarlið eins og það leggur sig.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.1.2009 kl. 08:15

10 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Jón Rúnar

NPN er skammstöfun notuð til styttingar á Njörður Pétursson Njarðvík.

Það er hópur af fólki að undirbúa nýjan Þjóðfund

Gunnar Þór Ólafsson, 22.1.2009 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þór Ólafsson

Höfundur er miðaldra bílstjóri sem lætur sér allt varða sem gerist í kringum hann.Mikið pólitískur og með ákveðnar skoðanir á þjóðmálum

Höfundur

Gunnar Þór Ólafsson
Gunnar Þór Ólafsson
Vinnur við akstur,og hefur áhuga á öllu milli himins og jarðar

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband