5.11.2008 | 22:26
Þrælakistur
Á sama tíma og Blökkuþrælar Ameríku losna endanlega úr hlekkjunum erum við Íslendingar fjötraðir í annað sinn í þrælakisturnar,hið fyrra sinn var á svartasta tíma miðalda,ef einhver náði að rétta úr bakinu ,þá var kirkjan og embættismannaliðið komið á bakið á honum og barði hann umsvifalaust niður eða brenndi á báli fyrir allt það sem þeim gat dottið í hug að bera á svona uppreisnarseggi og galdralýð,hugsið ykkur,fólk var brennt fyrir galdra og almúginn jafnvel trúði,máttur lyga yfirstéttanna var slíkur að jafnvel greindasta fólk lét undan,og sú meðvirkni virðist hafa erfst mann fram af manni allt til okkar daga
Ég er að hugsa um þetta því að nú eru þessir tímar að renna upp aftur,að vísu poppaðir upp og í takt við tímann,en engu að síður sama niðurstaða algjört ófrelsi og ójöfnuður.
Heldur þessi VR maður G.P.P. virkilega að hann geti selt okkur þau töfrabrögð að það hafi verið með hagsmuni almennra hluthafa sem stjórn KÞ tók þessa ákvörðun um falla frá sjálfskuldarábyrgð lykilmanna sem skulduðu andlag hlutabréfa sinna.Nei og aftur nei,að vísu sýndist mér hann vita að við vissum,að hann sagði bara hálfsannleika,svo kannski á hann til ærlega taug og segir af sér öllum embættum fyrir VR því það eru einu viðbrögðin sem sæma.
Og svo ég komi mér að erindinu.
Í dag átti ég tal við ungann mann sem keypti íbúð fyrir 4 árum og átti til skamms tíma um helming í henni ,en nú eru lánin komin upp fyrir söluverð og jafnvel ekki hægt að selja ,hann var í alvöru að velta því fyrir sér að labb út úr eigninni og láta lánadrottnum eftir að sýsla með hana og láta reyna á hvort farið verður fram á gjaldþrot, sjálfur á hann kost á vinnu erlendis .Það er skiljanleg afstaða þegar ungt fólk sem getur svo vel spjarað sig í normal umhverfi,getur ekki hugsað sér að vera í þrældóm það sem eftir er,heldur fer frá öllu sínu til að byrja nýtt líf í alvöru landi
Hann lét þess getið að hann hefði alltaf verið í skilum en núna væri staðan þannig að það væri honum gjörsamlega ofviða,í prinsippinu, að taka á sig og fjölskylduna margra ára þrældóm til að bæta fyrir misgjörðir annarra .
Svo brosti hann og sagði" Svo höfum við kallað Osama bin Laten glæpamann,hann er bara krakki í samanburði við okkar fauta" mig setti hljóðan, en þetta skyldi þó ekki vera rétt hjá honum?
Þeir sem sögðu að allir ættu að standa saman,hafa eflaust meint að það fengju þá allir ábyrgðareftirgjöf og niðurfellingar skulda,eins og topparnir,.Eða hvað?
Um bloggið
Gunnar Þór Ólafsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.