Mikil ógæfa ..Opið bréf til Sigmundar Davíðs.

Sigmundur Davíð við þig vil ég segja þetta

Þú ert sá aðili einn og sér sem gerðir þetta óhugnanlega og andstyggilega plott þeirra Steingríms Össurar og Forsetans mögulegt þú blést lífinu í nasir þess,þess vegna er eins gott að þú setjir þessu fólki stólinn strax fyrir dyrnar og gætir þess að þau geti ekki framið frekari skemmdarverk á Þjóðinni og Ríkinu.

Þú verður að anda ofan í hálsmálið hjá þessum sjálfumglöðu mönnum og konum  sem þarna láta járn sín glymja við jörðu.

Stærsti hluti stjórnarliða var að koma úr ónothæfri stjórn,og Samfylkingin mynnir óneitanlega á Júgóslavíu á dögum Títós þegar hann missti heilsuna varð allt snarvitlaust

Passaðu þetta vel ,því þú einn ert ábyrgur,og alls enginn annar..

Já passaðu þau vel  vegna þess að þingmenn VG eru ekki færir um nokkurn skapaðan hlut annan en vera í andstöðu,að undaskyldum Atla G hann er utan við drabbið og hann einn er á sama bekk og Jóhanna fólk getur sætt sig við verk þeirra.

Jóhanna Sig er ekki öfundsverð að eiga að leiða Ríkisstjórn VG, Samfylkingainnar og Forsetans,nei henni veitir ekki af hjálp þinni,stattu við stóru orðin og taktu þátt í að skapa nýtt Lýðræði en ekki gerast varðhundur ráðstjórnaraflanna..

Sigmundur Davíð ,fólk er margt skelfingu lostið vegna þessa verknaðar þíns að gera þessa stjórnunar myndun mögulega,svo ekki láta slátra þínum stjórnmálaferli á fyrstu vikunum,.

Það var fólk á torgum úti að mótmæla margt af því upplifir nú þá tilfinningu að það hafi verið svikið,þar sem krafan var Utanþingsstjórn,þetta fólk er ekki endilega sátt og hætt aðgerðum..

Þessa tilfinningu kannast margir við síðan formaður Sigtúnshópsins skildi alla eftir á vígvellinum og yfirgaf sína liðsmenn  fyrir þrjátíu skildinga..

Það var ekki bara VG fólk að mótmæla það var þverskurður Þjóðarinnar.

P.S. þeir útrásarvinir Forsetans sem næstir honum stóðu hljóta nú að fá synda aflausn

 


mbl.is Sigmundur Davíð kemur á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Bjarnason

Gott mál hjá þér.

Gunnlaugur Bjarnason, 27.1.2009 kl. 18:11

2 identicon

Þú ert snillingur. Þetta er eins og talað úr mínum munni, nema ég hefði ekki getað orðað þetta eins vel og þú. Nú þurfum við að standa vörð um landið okkar og tala við hvern þann sem vill hlusta. Við höfum séð að það virkar að mótmæla. Ég gerði mér bara ekki grein fyrir því hvað þurfti lítið að metta mótmælendur í þetta skiptið. Við vorum blekktir af VG í þessum mótmælum.

Þórður Möller (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 01:04

3 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Já góðir hálsar

Hafi verið þörf fyrr þá er nauðsyn núna,það hafa margir komið að máli við mig og spurt um framganginn í mótmælunum,því margir hrukku við þegar þeir ofan í allt annað heyrðu Heiðu B Heiðars segja í morgun á Útvarpi Sögu að hún væri bara ánægð með þessa útkomu út úr mótmælunum,en það er ekki almennur vilji fólksins að láta staðar numið.NEI..

Ég hafði samband við Hörð og hann full vissaði mig um að það yrði fundur á Austurvelli kl:15,00 á laugardag.

 Svo Þórður,og allir aðrir sem vilja Nýtt Ísland.Látum ekki blekkjast

Látum ekki staðar numið

Gunnar Þór Ólafsson, 28.1.2009 kl. 15:31

4 identicon

Ég spurði Heiðu B. Heiðars á hennar bloggi, hvort að það yrðu mótmæli á laugardag og hún svaraði mér að hún héldi ekki. En við þyrftum að horfa yfir axlir á ráðamönnum og fylgjast með að þeir væru að vinna vinnuna sína. Þvílíkt og annað eins bull. Núna þegja þessir aðilar þunnu hljóði.

Þórður Möller (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þór Ólafsson

Höfundur er miðaldra bílstjóri sem lætur sér allt varða sem gerist í kringum hann.Mikið pólitískur og með ákveðnar skoðanir á þjóðmálum

Höfundur

Gunnar Þór Ólafsson
Gunnar Þór Ólafsson
Vinnur við akstur,og hefur áhuga á öllu milli himins og jarðar

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband