Fær rós í hnappagatið! Hún á það skilið blessunin

Hæstvirtur Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir fékk hvatningarverðlaun í dag.

Henni veitir alveg örugglega ekki af viðurkenningu og hvatningu blessaðri konunni verandi stödd  í ráðherrahóp þessarar afleitu ríkisstjórnar sem nú er við völd.

Hún ein af þessum þrettán er þess verðug  að vera ávörpu Hæstvirtur Ráðherra hinir eru blákalt sagt einskis virði ef meta á þá eftir verkum þeirra.

Þó eru sínu verstir Dómsmála,sem eflir óeirðalögguna en dregur úr framlögum til efnahagsbrotadeildar,og er ekki öruggari með sig og sinn málstað en svo  að hann er bullandi á heimasíðu sinni um menn og málefni  en þorir hvergi að koma á fundi eða í beina útsendingu frétta,lætur senda sér spurningar í rafpósti,-ja hérna.

Heilbrigðis,sem gerir allt vitlaust í málum sjúkra og aldraða,og hefur svipuð ógnandi áhrif á gamalt fólk og sjúklinga  eins og svarti dauði hafði á sínum tíma .Eða eiga aldraðir skilið að vera slitnir upp með rótum og fluttir með valdi

Fjármála,sem gerir hver læknamistökin á fætur öðrum,og hækkar svo skattana  .

Forsætis,sem hunsar alþýðu manna og sýnir alþjóð dæmalausan hroka í nánast hverju viðtali,og segir svo á gamlársdag-     "hafi mér orðið á mistök þá þykir mér það leitt"   hversvegna þennan fyrirvara hversvegna ekki einfaldlega Íslensk Þjóð, fyrirgefið:.

Enn einu sinni ætla ég að benda á að þann sjötta október þegar Geir Hilmar Haarde ávarpaði þjóðina sagði hann orð rétt:"Guð blessi Ísland" Ísland er grjót og klaki og mold þess vegna hefði mér fundist að æðsti maður þjóðarinnar hefði átt að biðja Guð um að blessa Íslensku þjóðina,það hefði verið meira við hæfi.Svo snúa fjölmiðlamenn þessu á haus aftur og aftur vegna þess að hitt bara er rangt að biðja Guð um að blessa Ísland við þessar aðstæður,en ekki þjóðina.

Utanríkis,sem telur að íslenskt fólk sé ekki þjóðin ,og lætur viðgangast eitt allsherjar bull sem birtist í forkastanlegri utanríkisþjónusta hverrar stærðar er fá heyrð í heiminum miðað við fólksfjölda.Hvað ætli hinn raunverulegi kostnaður við framboðið til Öryggisráðsins mundi nægja lengi til reksturs Sjúkrahúss Suðurlands?

Og að ég tali nú ekki um Umhverfisráðherra,sem gerir allt sem í hennar valdi er til að stöðva uppbyggingu í orkufrekum iðnaði,,konan sú er nú  bara alls ekki trúverðugur fulltrúi á Alþingi Íslendinga verandi í fararbroddi stórasta Krataflokksins en er svo á móti atvinnusköpun,en vill samt nota almannafé til leiguflugs með sig á vettvang hvítabjarnaslátrunar. 

Ég hafði næstum gleymt Menntamála hún sagði í haust að það væru spennandi tímar framundan hjá fólki og sagði líka að það væri sorglegt ef fresta yrði monthúsinu við höfnina,skítt með námsmenn það er bara fólk .

Samgöng er nú ekki sem verstur,hann bara hækkar álögur en skemmir svo sem ekkert .

Viðskipta svo sem ekki heldur hann er sennilega of góður fyrir þetta skítabrölt,sem stjórnmálin eru nú um stundir.

Þar sem ég ólst upp voru húsráðendur gegntryggir Sjálfstæðismenn og komu Bjarni Ben og Ólafur Thors oft í sveitina til skrafs og skemmtunar,svo það þarf engan að undra þótt undirritaður hafi verið býsna heitur Sjálfstæðismaður fram undir þetta, en svo andstyggilega geta stjórnvöld komið fram við okkur Íslendinga að jafnvel ég er farinn úr  stuðningsmanna sveitinni,og er það ansi erfitt þar sem mér hefur fundist Sjálfstæðisflokkurinn alveg vera kjörland fyrir Demókrata eins og mig,þó var frjálshyggjan orðin alltof ráðandi og heimtufrek  þar á bæ.

Mikið saknar maður manna eins og Einars Odds,Guðmundar J,Matta Bjarna,Davíðs Oddsonar,Jóns Baldvins og Vilmundar Gylfasonar,en við höldum þó Hæstvirtum Félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur ennþá.  Guði sé lof:

Þjóðin má fara að átta sig á því  að það passar hana enginn ef hún gerir það ekki sjálf,og ef  hver og einn stendur ekki með sjálfum sér er voðinn vís.

Mætum því öll á Austurvöll á morgun kl: 15.00 á morgun


mbl.is Jóhanna fékk Rósina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er hverju orði sannara Gunnar, Hæstvirtur félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir er vel af þessu komin, Og ég verð að segja að eftir þetta ár 2008 er hennar tími kominn.

Tek heilshugar undir með þér Mætum öll á Austurvöll á morgun.

Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 21:26

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mikið rétt drengir mínir. Þetta hefði líklega þótt aum hreppsnefnd hér áður fyrr.

Árni Gunnarsson, 9.1.2009 kl. 21:41

3 Smámynd: Gunnar Þór Ólafsson

Stefán .Fyrir mér er það ljóst að Jóhanna er eini Ráðherrann og jafnvel eini þingmaðurinn sem er treystandi til að leiða blindan mann yfir götu,og þess vegna á hún skilið að fá glaðning

Að öðru leiti er tengingin túlkunaratriði hvers og eins.

Gunnar Þór Ólafsson, 9.1.2009 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnar Þór Ólafsson

Höfundur er miðaldra bílstjóri sem lætur sér allt varða sem gerist í kringum hann.Mikið pólitískur og með ákveðnar skoðanir á þjóðmálum

Höfundur

Gunnar Þór Ólafsson
Gunnar Þór Ólafsson
Vinnur við akstur,og hefur áhuga á öllu milli himins og jarðar

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 735

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband