18.2.2009 | 18:28
Mikið happ fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Jón Magnússon þingmaður er nú loksins kominn alla leiðina heim ,eftir að hafa ráfað um, sem ákafur leitandi í eyðimörkinni ,með stofnun flokks sem ekki átti erindi,og með viðkomu í Frjálslynda flokknum ,sem ekki reyndist honum það griðland sem hann vænti.
Nú er hann loks komin á áfangastað og það er gott.
Heimkomu hans í Íhaldið ,er því ákaft fagnað jafnt af fylgismönnum Sjálfstæðisflokksins,og merkilegt nokk ,ekki síður af andstæðingum hans.
Jón Magnússon var í Sjálfstæðisflokknum,tók síðan einn hring á dansgólfinu,en er nú kominn til baka,og nú er verkið fullkomnað.
Jón Magnússon í Sjálfstæðisflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Gunnar Þór Ólafsson
Höfundur er miðaldra bílstjóri sem lætur sér allt varða sem gerist í kringum hann.Mikið pólitískur og með ákveðnar skoðanir á þjóðmálum
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott þegar fólk finnur "fjölina" sína...Ætli alikálfinum hafi verið slátrað í Valhöll?
Sigrún Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 19:34
Það er allaveganna fínt að hann fari þangað sem hann á heima þessi ofaldi alikálfur, Ætli Eiríkur Stefánsson fari ekki með honum. Eiríkur hefur lýst Jóni sem dýrling.
Vilbogi Magnús Einarsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 20:37
Hann hefur vonandi fengið betri móttökur heldur en Ólafur F. fékk þegar hann sneri aftur í Frjálsynda flokkinn síðastliðið haust. Svo er eftir að sjá hvort Jón verður ofarlega á framboðslistum hjá Sjöllum....
Sigríður Jósefsdóttir, 19.2.2009 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.